þAÐ leitar NiðuR á við
2.11.2007 | 00:23
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Dagblað, moggi eða annað
1.11.2007 | 02:30
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Grænlenskur listamaður heimtar að loka steinfígúru inni
31.10.2007 | 02:45
Ef grannt er skoðað leynist grænlensk steinfígúra föst inní glermassanum.
Grænlenski listamaðurinn sem ég starfaði með var himinlifandi þegar það tókst að loka úthöggnu fígúruna hans inn í gleri. Ég gæti best trúað að hann brosti ennþá...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
JÓLIN KOMA !
30.10.2007 | 00:28
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Heitir dagar eru góðir dagar...
26.10.2007 | 03:43
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Gler og sjórekinn viður
24.10.2007 | 00:15
Svona lítur steypt glergríma út á sjóreknum við safnað upp við Reykjanesströndina.
Hluti af verkefni með sjórekið tré og gler.
Sjórekið tré endurspeglar tímann og afmáunina sem allir og allt er ofurselt.
Grímur hafa lengi verið í uppáhaldi hjá mér, veit ekki alveg hvers vegna. Ég gæti trúað því að þannig væri því háttað um marga. Ég held að manneskjur eigi auðvelt með að horfa á önnur andlit, sjúga í sig svipi, augnráð, byggingu. Gríman er egóið og andinn, persónuleikinn, hjarta útgeislunarinnar.
Svo má svo sem tala um grímuna sem íkon, birtingu andanna og allt það.
Nenni því bara ekki...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Bjössi og jákvæðniskúlan
11.10.2007 | 22:57
Þessi ágætis drengur, Þorbjörn Einar Guðmundsson (stundum kalla ég hann litla bróðir), var svo indæll að rita jákvæð skilaboð á eina af mínum munnblásnu glerkúlunum. STAY FRESH, ritaði drengurinn stórum stöfum og henti svo kúlunni í nærliggjandi gosbrunn. Fallega gert af honum og vonandi hefur hýrnað yfir finnanda þessarar grænu jákvæðniskúlu.
Við þörfnumst jákvæðni. Dreifum henni eftir fremsta megni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gul kúla og jákvæð skilaboð
7.10.2007 | 00:50
Flóra Stienne ritaði jákvæð skilaboð á frönsku á þessa gulu glerkúlu.
Hún flaut í gosbrunni í miðborg Parísar síðast þegar spurðist.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mýturnar ljúga
5.10.2007 | 23:56
Kominn frá París á klakann á ný. Myndin er af framlagi mínu á sýningunni Open Art 2007. Frjálsar og opnar sálir og orkan gífurleg. 100 listamenn frá öllum heimshornum í lifandi fögnuði.
Frakkar eru ekkert hrokafullir og svo tala þeir ensku líka.
Mýturnar ljúga, næstum alltaf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
FLJÓTANDI JÁKVÆÐNISKÚLUR REKA KANNSKI AÐ ÞINNI STRÖND
7.9.2007 | 00:26
Það er skortur og fátækt, volæði og kvöl. Jákvæð orka í verki læknar og heilar.
Í tengslum við alþjóðlega listsýningu í París sem ég var svo heppinn að komast inn á, mun ég nota tækifærið í rólinu um heimsborgina og senda jákvæðan boðskap fljótandi niður ár Parísarborgar.
Litríkar glerkúlur skreyttar uppbyggjandi boðskap munu fljóta og bíða þess að vera uppgötvaðar af ógrunandi lýðnum, hvort sem er í borginni sjálfri eða annars staðar. Með nokkurri heppni munu einhverjar þeirra skolast upp að ströndum framandi landa og skína af jákvæðni í flæðarmálinu. Þetta er svona lítið hliðarverkefni við hliðina á sýningunni en þetta verður bara gaman.
Hver veit nema úrillur, afrískur þunglyndissjúklingur teygi bros á fési þegar hann sér skærrauða kúlu áritaða á strönd við þorpið sitt með textanum: SMILE YOU ARE WORTH IT ?
Nú eða grænlenskur áfengissjúklingur sem nýlega hefur beðið gjaldþrot vegna kvótaskerðingar þegar hann siglir fram hjá einni af jákvæðniskúlunum á kajaknum sínum og les: Money is just a symptom of the times ?
Jæja þá, meira um þetta seinna....
Góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Útöndun nýrómansins forna
27.8.2007 | 01:24
Ég hef áður ritað í þessu bloggi um hið nýrómantíska æði mitt og nokkura vina minna sem skall á mér fyrir tvítugsaldurinn. Þetta voru ansi skemmtilegir tímar og mikið ort og rýnt í skruddur, dálítið fyndið að hugsa til þess að skömmu eftir að þessu tímabili fór að halla, spratt kvikmyndin "Dead poets society" upp kollinum.
Hér læt ég fylgja eitt af myrkari ljóðum sem ég skrifaði (eða orti ef maður vill vera fínn) á þessum tíma. Fyrir víðlesnari menn býst ég við að berklaveikir orðsnillingar og vofur nýrómatíkurinnar sveimi um á milli lína. Jafnvel að hægt sé að bera kennsl á einhverra þeirra. Njótið vel...
Grafarljóð
Grafðu þig dýpra í gjána,
gjöf mín í djúpinu´ er falin.
Myrkur hins glottandi mána,
mætir þér niðdimma nótt.
Mörkin á illskunni er alin;
angurvær meyja við ána,
vitjar um von sína dána,
vindurinn þýtur svo hljótt.
Grafðu þig dýpra í gjána,
gjöf muntu hljóta að launum.
Þorstinn er vekur upp þrána,
þjaka mun vonina skjótt.
Reynslan er falin í raunum,
roði þíns hjarta mun blána.
Gæfa þín litrík mun grána,
í nístandi helkaldri nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Lítil klausa um taugaveiklaðan mann
26.8.2007 | 02:49
Verandi áhugamaður um orð og samsetningu orða hef ég gengið í gegnum allskyns tímabil. Flest algild sannindi hafa fölnað í tímans rás og baráttan við heild og eitthvað sem mætti kallast "stíl" heldur áfram. Litla klausan um taugaveiklaða manninn er frá svona tímabili. Njótið heilla !
LÍTIL KLAUSA UM TAUGAVEIKLAÐAN MANN
Vakinn og sofinn,
daufur og dofinn.
Á ystu nöf,
við eigin gröf,
gengur hann.
Skyggnist um,
með stjörfum augunum.
Hann ferðast einn,
hér er ei neinn.
Það veit hann vel,
en þandar taugar flytja huga boð,
um hættur og vonda hluti, illa menn.
Óræðir skuggar flökta inn á augnlokunum,
í hvert sinn sem hann blikkar augunum.
Útlínur martraða sem bíða færis.
Hann man ekki hvers vegna hann kom hingað eða hvaðan,
en það er eins og hann rámi í,
að hann sé á leiðinni eitthvað.
- Lárus G
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
AÐ ENDURFÆÐAST SEM GULLFOSS
24.8.2007 | 01:19
Ef ég væri foss væri Gullfoss efstur á óskalistanum.
Draumaprins náttúrunnar með 70 metra fallhæð og fólk frá öllum heimshornum að dást að mér.
Kannski í næsta lífi endurfæðist ég sem ísdröngull úr Langajökli og flýt niður gilið sem hundrað þúsund regndropar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Rætur
22.8.2007 | 11:15
RÆTUR Í geislandi birtu þessara nátta; |
Ljóð | Breytt 23.8.2007 kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Feitur&Grænn
22.8.2007 | 02:33
Herra Feitur&Grænn getur ekkert að því gert þó svo hann sé svona feitur og grænn. Einn og illa liðinn liðast hann eftir svörtum söndum og kennir í brjósti um sjálfan sig. Hann er útskúfaður af fjöldanum; sker sig úr hvar sem hann kemur. Herra Feitur&Grænn er fullur af skömm og sýtir bitran barndóm sinn. Hann man hlátrasköllin frá hinum krökkunum fyrsta skóladaginn og hvernig stelpurnar hlunnfóru hann í gaggó. Bendingarnar á götum úti þegar hann hættir sér innan um almenning eru óumberanlegar. Hann hefur aldrei farið í sund og þorir ekki í sólarlandaferðir því allir gera grín að honum á ströndinni. Herra Feitur&Grænn er feiminn og dálítið inn í sér en samt hið besta skinn og leit að betri vini og förunaut. Það veit það þó enginn því Herra Feitur&Grænn er alltaf einn. Vill einhver eiga hann ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mannkynssaga fyrir byrjendur - Gúnter í neðanjarðarkompunni
6.8.2007 | 22:30
Adolf arkaði um neðanjarðarbyrgið og virkaði æstur. Hann talaði ýmist við sjálfan sig eða hrópaði eitthvað út í loftið sem hljómaði sem blanda af skipunum og mumli. Augun galopin og stjörf af margra sólarhringa vöku. Læknaamfetamínið hélt honum í háum gír og það var ekki annað að sjá en að hann væri enn staðráðinn í að sigra heiminn.
Í kringum foringjann þustu undirmenninn ýmist um eða húktu vondaufir út í hornum. Þeir allra daufustu höfðu gefið allt upp á bátinn og voru búnir að drekka frá sér ráð og rænu, ýmist hlógu upp í opið geðið á hvor öðrum eða vældu ámátlega. Daufur ómur byssuskota og sprengja erti hlustirnar.
"Dolli minn...", sagði Gúnter sem alltaf gat fengið foringjann niður á jörðina, "þú verður bara að feisa það að partíið er búið". "Þetta hefur verið drullugaman en þetta gengur bara ekki lengur, við eigum ekki séns". Hann klappaði foringjanum vinalega á öxlina og reyndi að ná í gegnum stjarft blikið. Foringinn var ekki að ná þessu. " Rugl, þvættingur, þvæla"! hrópin fylltu grenið. "Við rústum þessu strákar, ég skal ná þeim öllum, rústa þeim, naga af þeim punginn, hengja þá upp í næsta tré". Viðstaddir hristu hausinn eins varlega og þeim var unnt. Allir vissu hvað aðstæðum leið nema höfuðpaurinn að því er virtist. "En Dolli minn, herinn er sigraður, þeir eru svo nærri að þeir banka á dyrnar, það væri hyggilegast að reyna að komast á brott áður en allt verður um seinan". Löng þögn. "Flýja segirðu" ? foringinn leit píreygður á Gúnter. "Já flýja", sagði aðstoðarmaðurinn að bragði. "Þú átt nóg af seðlum í Sviss og getur lifað eins og kóngur til æviloka; strákarnir fljúga þér þangað sem þú vilt; kýldu á þetta maður í staðinn fyrir að væflast hér í þessari líkkompu."
Hitler starði lengi út í tómið. Loftið var þrungið spennu, dauða og örvæntingu. Skyndilega tekur hann á sig rögg.
"Gúnter, dragðu úr þér tennurnar og láttu Frits tannlækni henda mínum upp í þig. Þær liggja í poka inn í frysti. Ég fékk þær dregnar úr mér fyrir nokkrum árum. Farðu svo með Evu og taktu bláu pillurnar með þér. Ég er búinn að ræða málin við hana. Hún hefur ekkert á móti þessu enda löngu orðin rugluð og þreytt." Gúnter hvítnaði og reyndi að stama eitthverju upp úr sér...
"Ekkert rugl Gúnter", hrópaði foringinn..."Þú gerir það sem ég segi; I am going to the Bahamas".
Það síðasta sem sást til Gúnters var með naglbít í höndunum og blóðtauma í munnvikum. Eva beið við hlið hans og kíkti á klukkuna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja, þá fer að koma að því. IceGlass, fyrsta opna glerblástursverkstæðið á Íslandi opnar í kringum 20. ágúst að Grófinni 2 í Keflavík. Þegar ég segi "opið" á ég við að það er gestum og gangandi fullkomnlega frjálst að reka inn nefið og fylgjast með því þegar glerið er blásið og formað, þetta hefur hingað til ekki verið hægt hér heima.
Hægt er að panta sér glermuni út frá eigin óskum hvort sem er til gjafa eða til eigin nota og einnig verður um stórt úrval muna til sýnis og sölu á staðnum. Vinnuhópar, skólar og svo framvegis geta einnig pantað tíma á verkstæðinu þar sem fólki gefst færi á að prófa sig fram við þessa heillandi iðn, að sjálfsögðu undir góðri leiðsögn.
Við mæðginin, ég og Gulla, höfum starfrækt verkstæði af þessu tagi í Danmörku um árabil og nú er komið að því að skella þessu upp hér heima. Hendi upp nákvæmari opnunardagsetningu seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Driftwood, poetry and glass. Myndklippa úr heimildarmynd
30.7.2007 | 00:44
Við strönd á Reykjanesi datt mér í hug að fallegt væri ef fleiri ljóðskáld sameinuðust um útgáfu ljóða á rekavið sem fleyta myndi út til hafs. Glerið speglaðist í haffletinum þar sem ég gekk um og myndaði glerinnsetningar á staðum, það var fullkomið logn og heiðríkja og þetta verkefni virtist í mínum huga óumflýjanlegt. Ég hef síðan unnið að þessu litla verkefni og hér er lítil klippa af þessu. Vonast til að fullklára þetta innan mánaðar. Vantar eitt til tvö skáld í þetta, svo ef einhver lúrir á litlu skáldi látið mig vita. Njótið vel. Í klippunni flytur ljóðskáldið Brynjar Jóhannsson eitt ljóða sinna.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fleygir skotar
28.7.2007 | 00:03
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fleyg orð
26.7.2007 | 22:03
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)