Bloggfærslur mánaðarins, desember 2007
Allt er í byrjun hnöttótt og á köflum hvasst milli mjúkra línanna....
9.12.2007 | 00:00
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bleiki kyssifiskur og guli hundakveikjari hvíla á hvítum stalli.
Þeir láta sér aldrei leiðast heldur hafa ofan fyrir hvor öðrum með hnyttnum vísum og bröndurum.
Útsýnið hjá þeim er svo sem ekkert voðalega breytilegt en það skiptir engu máli.
Þeir eru alltof uppteknir af gleðinni við félagskaps hvor annars til þess að pæla of mikið í því.
Einu sinni var guli hundakveikjarinn langt í burtu frá bleika kyssifisknum.
Þá leiddist honum mikið og var einungis notaður í að kveikja í sígarettum.
Nú er hann gaslaus.
Samt er hann glaður af því hann hefur fundið besta vin í heimi.
framhald fylgir.............
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hann hafði nýlega látið stækka á sér varirnar...
6.12.2007 | 02:12
HERRA BLEIKA KRUKKUFÉS var glaður. Hann hafði nýlega látið stækka á sér varirnar og þótti útkoman einkar góð. MIKIÐ ER ÉG KYSSILEGUR hugsaði HERRA BLEIKA KRUKKUFÉS með sér og brosti. Með sín vatnsbláu augu og fagurbleika lit hugðist hann sigra kvenþjóðina. Áður fyrr gekk hann um niðurlútur með sínar ALLTOF ÞUNNU VARIR og hélt aldrei að nokkur af KRUKKUBEIBUNUM myndu líta við honum. Nú var öldin önnur !!! HERRA BLEIKA KRUKKUFÉS var orðinn KRUKKURÓMEÓ !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)