Samóma - Glerinnsetningar til skammtíma og langtíma í íslenska náttúru
24.7.2007 | 22:33
Ég er sem fleiri heltekinn af íslenskri náttúru í allri sinni hrikaleik og dýrð. Ég hef um skeið gert mér sérstakt ómak við að njóta hennar eftir því sem tími gefst til, leikið mér með glerið mitt og bara lifað.
Myndin hér er sú fyrsta í verkefni sem stuðlar að því að sameina glerlist mína íslenskri náttúru. Vona að þeir sem kíkja njóti vel.
(Sökum samanþjöppunar á gæðum til að geta hent þessu upp hér, mæli ég með því að láta það eiga sig, að stækka myndbandið upp í fulla skjásýn.)
Tónlistin er af litlum geisladisk sem ég vann að hluta til í samvinnu við sellóleikara nokkurn, Cosmo D, búsettan í New York. Diskur þessi náði þeirri frægð að prýða vefverslun Smekkleysu á sínum tíma en hefur annars bara yljað vinum og kunningjum um eyrnasnepla.
Bloggar | Breytt 25.7.2007 kl. 12:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
UM ÚTSTROKUN EGÓSINS
21.7.2007 | 10:01
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
BLAÐBERABLÚS
19.7.2007 | 08:00
Á meðan löghlýðnir borgarar bæla
þjóhnöppum í beðla
kattfimum fótum
um hverfið
og læðir mogganum
innum lúgurnar
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sjálfhverft blogg
16.7.2007 | 00:19
Mér virðist sem skipta megi bloggum fólks í bloggheimum í þrjá flokka; sjálfhverf blogg, málefnaleg blogg og svo sjálfhverf og málefnaleg blogg. Þetta blogg er sjálfhverft.
Ljóðið hér fyrir neðan er skrifað fallegt sumar í Grikklandi fyrir nokkrum árum síðan. Njótið vel...
Draumur í hita #3
Andadráttur þinn svæfandi vindur í eyra mér.
Hár þitt freyðandi öldur á vanga mínum.
Ég sekk til botns í þér.
Ég heyri þig syngja niður í djúpið.
Lyktin af þér sölt eins og sjórinn sem þú elskar.
Grænblátt haf sem við elskuðumst í.
Í skauti sólbarinna fjalla.
Ást full af sumri og hlátrinum frá þér.
Ást full af sumri og ljósbláu lífi.
Ást full af þér.
Dreymandi eðla á hvítum vegg.
Hálfur máni við fjallsins egg.
Augu þín vitar í myrkrinu.
Návist þín vakandi draumur í hjarta mér.
Ég sekk til botns í þér.
Ég heyri þig syngja niður í djúpið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)