Færsluflokkur: Bloggar

RÝMI/SKURÐUR

ísrým

S K E R SÉR P L Á S S Í R Ý M I Ð


Vaxtapæling #2

hugumstorir

Iðar, skellur, hvissar.


Víkurstopp

vikurstopp

Hvílir við bjarg og bíður færis,

fartennur brýnir.


Nýspretta

skal3.kold2

NÝSPROTIN


Afturkall

kupa

GRUNLAUS UM ÖRLÖG SÍN.

FALLINN FRÁ LÍFI.

BORIN TIL SJÓNAR Á NÝ HVAR GLITTIR Í GRINDINA.

LÍFVERA.


Innskot

hr.hustler

Stóð í regni kúlna og sagði sögur...


DRAUMUR UM VOR

vorduvoxtur

VAXA Í VÖRÐUM.

DRAUMUR UM VOR.


AUSTURVALLA VELLINGUR HINN FYRSTI

N.B EFTIRFARANDI LÍNUR BER EKKI AÐ TAKA NEITT SÉRSTAKLEGA ALVARLEGA. 

Austurvalla vellingur hinn fyrsti 

Þeir ganga um með kúabjöllur, kúk og piss í pokum.
Pottalokin lemja fast og hrópin eru æst.
Þeir hafa það við hendi sem þeim stendur næst;
og hrópa FASISTAR.

Bálkestina byggja, hyggja á heilög yfirráð.
Himinháar vonirnar drjúpa af vörum,
kvarta sáran yfir múgsins hræðilegu kjörum;
kyrja FASISTAR.

Fundi halda í skúmaskotum eða stórum sölum.
Helgur andi sannleikans þar sveimar fagur um,
boðskap sínum flíka í fínu sjónvarpsþáttunum;
þeir syngja FASISTAR.

Þið þekkið þá á ópunum og ullarhúfunum,
skreyttum upphrópunum á mótmælaskiltunum.
Verkamannayfirbragði, stæltum vöðvunum;
þeir væla FASISTAR.

Gefum þeim orðið sem eitthvað hafa að segja,
betra er að fíflast á torgum en þegja.
Þeir sjá fyrir gasið og höfuð sín hneygja;
hrópa FASISTAR.

Þökkum þeim aumum á Austurvelli,
sem upphalda heiðrinum lýðs og lands.
Mótmæla í krafti kúks og hlands,
og kyrja FASISTAR.


KONAN MEÐ RYKSUGUNA

jón múli malaði sögur um látna menn
og konan með ryksuguna lét ekki bilbug á sér finna
heldur horfði fast í bláleitt teppið og nuddaði hausnum
fram og aftur
einbeitt og athugul
mótorinn á fullu
funheitur af áreynslu
látinn ganga svo klukkutímum skipti
á meðan konan með ryksuguna
fékk hugsjón sinni framfylgt
um hreinni og betri heim
þar sem rykkorn hversdagsins
létu hvergi á sér hræra
og blettir og sull heyrðu sögunni til
það var sem allt hyrfi í svarthol
pokans sem tilheyrði vélinni
konan með ryksuguna var dagfarsprúð og þekkt af góðu einu
þó skipti hún skapi
en aðeins þegar bakkus blés henni kjark í brjóst
þá króaði hún húsbóndann af í betri stofunni
hellti úr sneysafullum skálum reiðinnar
þrumaði og roðnaði af heiftinni einni saman
hringdi í fjarskyld ættmenni
þusaði um gamlar syndir og mein
eða velti lúmskri sök yfir á grunlausan ættingjann
fastan hinu megin línunnar
ef í fjarskanum heyrir þú suð þrálátt
sem aðeins er brotið upp af djasshljómum múlans
þá máttu ganga að því vísu
að þar fer
konan með ryksuguna

LEIKUR UM ÁST

hann festist í spékoppum hennar þegar hún brosti
hékk þar og lék sér í djúpum holds hennar mjúka
fékk í eyrum þegar hún hækkaði raustina skæru
(hún hrópaði hátt á hundinn sinn)

hann lék sér um nætur í löngum skoðunarferðum
um andlitið fagurt, eyrun hans uppáhaldsstaður
þar dvaldi hann um nætur og varð hluti af hennar ímynd
þó þótti honum miður um sífelldar sturtuferðir
hvar vatnið lamdi hann lítinn og votan og auman
þá skreið hann sem lengst inn í nef hinnar verndandi gyðju
beið þurrks eins og bóndi í nefgöngum unnustu sinnar

eins voru frostkaldir dagar eitur í beinum
þá lumaði hann sér djúpt í hálsakot kvensniftarinnar
stundum hugsaði hann í þögulli gleði
um hlutskipti sitt og hlutverk í lífinu góða
um stúlkuna fögru sem var hans íverustaður
allt hans og ekkert
hana grunaði fátt en stundum þó klæjaði ögn
þá brosti hann með sjálfum sér og hugsaði:
bara ef hún vissi

þannig hann dvaldi um hálfa og heila eilífð
naut ásta við stúlkuna grunlausa þó án þess að fleka
söng hástöfum ástarsöngva sem þó ekki heyrðust
og lifði sem konungur ríkis sem hvergi er skráð
hann minnir um margt á húsbændur suma samt enga
sem frúhollir dvelja í málaðri mynd sinna meyja
og brosa út í hyllingu um heim sem að alls ekki sér þá
og festast í spékoppum sumir þó alveg án gruns

þetta er neðanmálsnóta um ásetning brosandi meyja sem meitla í stein
einsleit örlög og glósur um daga sem líða við hjal
og skipa svo riddara í skák sinni (skikka þeim pláss)
þar sem þeir geta skapað sér rými og leikið
leikinn um ást


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband