Um lætin í Hr. Úr Fókus
12.2.2008 | 23:23
Hann var æstur og nánast hrópaði, röddin þvengmjó eins og í kórdreng en rám eins og í Rod Stewart:
JÁ, ÉG VEIT AÐ ÞÉR FINNST ÉG EKKI VERA JAFNGILDUR ÞÉR. ÉG VEIT AÐ SVONA FLÖSKUR EINS OG ÉG SEM EKKI ERU Í FÓKUS OG MEÐ TVÖ AUGU HÆGRA MEGIN ERU ASNALEGAR Í ÞÍNUM AUGUM. ÉG VEIT AÐ ÞÚ HELDUR AÐ ÞÚ SÉRT YFIR MIG HAFIN. ÉG VEIT AÐ EF ÞÚ ÆTTIR MIG MYNDIRÐU HELLA VERSTA ÓÞVERRA Í MIG OG HLÆJA SVO AÐ MÉR EÐA STILLA MÉR UPP Á SKÁP OG LÁTA MIG RYKFALLA !
Hann hélt áfram:
EN.........ÉG SKAL SEGJA ÞÉR ÞAÐ AÐ ÉG ER HR. ÚR FÓKUS OG LÆT HVORKI ÞIG NÉ NOKKURN ANNAN...................HLJÆJA AÐ MÉR !!!
Ég vissi ekki hvernig átti að bregðast við þessum látum í honum og afréð að flýja áður en kringumstæðurnar yrðu verri...
Athugasemdir
Ja sjálfsálitið er allavega ekki að drepa hr úr fókus
Guðríður Pétursdóttir, 12.2.2008 kl. 23:28
Guðríður: Nei, hann ræðst hiklaust til atlögu við vöðvaþrútna menn sem eru hundrað sinnum stærri en hann. Hugrökk lítil flaska ! Nema þetta sé dulbúin minnimáttakennd ? Annars er ég hálf hræddur við hann svo mig langar ekkert að komast að því hvort það er...
Lárus Gabríel Guðmundsson, 12.2.2008 kl. 23:31
Mér finnst hann vera hún.
Sigga, 13.2.2008 kl. 10:33
Sigga: Já, mögulega en það er erfitt að segja, þekki hann bara undir nafninu Hr. Úr Fókus....en kannski þvengmjó röddin komi upp um hana ?
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 12:21
Gæti verið hún eftir eina Whiský .... gæti verið, eða hvað. Annars held ég að það sé töluvert góður andi, sköpunargyðjurnar sveima um í stúdíóinu hjá þér!
Sá á netflakki auglýsingu um sýninguna sem Embla mun halda hjá ykkur félögum.
Allt að gerast sem er gott!
www.zordis.com, 13.2.2008 kl. 17:58
Zordís: Þetta mál með kynið á Hr. Úr Fókus er farið að fara á sálina á mér. Málið er að ég held að "hann" sé kynlaus eða tvíkynja. Engin merki sjást um kyn enda er "hann" flaska.
Jú, Embla Dís sýnir næsta mánuðinn á verkstæðinu hjá okkur, kannski stingur þú upp myndum einn mánuðinn ? Væri gaman að því ...
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 21:59
Minnir mig á þvagflösku af spítala, nema bara með andlit.
Kreppumaður, 13.2.2008 kl. 22:30
Kreppumaður: Lífið væri betra ef spítalarnir keyptu þessar flöskur í þau afnot, bæði fyrir sjúklinga og mig !
Ég myndi samt ekki gera þessari flösku það ef ég væri þú.....
Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.2.2008 kl. 23:17
Já ég held að kreppumaður kæmi ekki heim óskrámaður ef hann reyndi það
Guðríður Pétursdóttir, 14.2.2008 kl. 00:53
Guðríður: Hr. Úr Fókus bítur frá sér !
Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.2.2008 kl. 00:58
Hr. Fókus er að sjálfsögðu kynlaus kynjaflaska, afskaplega skemmtilegar hugmyndir sem vakna oft hér á síðunni þinni.
En ég hlakka alltaf mikið til að fá meilið frá þér ......
www.zordis.com, 14.2.2008 kl. 19:13
Zordís: Takk fyrir komment....ég lofa því að koma meilinu af stað....LOFA LOFA LOFA
Lárus Gabríel Guðmundsson, 14.2.2008 kl. 22:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.