Færsluflokkur: Bloggar
Hann fæddist með búk úr ryðfríu stáli
17.1.2008 | 23:54
Hann fæddist með búk úr ryðfríu stáli, glerspjót í hendi af minni gerðinni, seinna missti hann höfðuðið en það gerði ekkert til því hann fékk í skiptum þetta fína glerhöfuð. Hann ferðaðist víða með járntöskuna sína þangað til hann missti höfuðið að nýju. Ég sé honum bregða fyrir annað slagið og fæ alltaf samviskubit yfir því að skella ekki öðru höfuði á kappann...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hringdu í hana...
17.1.2008 | 00:16
Frú Glöð baðar sig í sólinni, tekur slátur á hverjum degi, heldur saumaklúbb vikulega, heklar veggteppi, leggur fyrir peninga fyrir ellina, er í kór og kiwanisklúbb, heldur tombólur til styrktar fötluðum og vill hjálpa þér að verða betri einstaklingur.
Hringdu í hana...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Keisarinn, hafmeyjan og litli ljóti andarunginn...
16.1.2008 | 03:52
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hr. Litríkur Glerhaus tapar stríðinu (fyrsti kafli)
13.1.2008 | 23:55
Herra Litríkur Glerhaus hafði tapað stríðinu við Hvítu Kúlurnar. Þær höfðu svipt hann búknum og rænt hann auðnum. Nú hvíldi hann höfuðið á svörtum steinum og beið þess að besti vinur hans; búkagerðamaðurinn Búbbi Tjull kæmi og bjargaði honum, vonandi með nýjan búk handa honum undir hendinni. Það var hægara sagt en gert. Hvítu Kúlurnar stóðu vörð um Hr. Lítríkan Glerhaus og voru allar hinar vígalegustu....
Framhald fylgir....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Það risu tveir englar úr björtu vatni. Það var síðasta sumar og sólin steig upp klukkan fjögur um nóttina...
13.1.2008 | 00:23
Það risu tveir englar úr björtu vatni. Það var síðasta sumar og sólin steig upp klukkan fjögur um nóttina...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
LÍTIÐ OG EITT DVALDI EPLIÐ VIÐ GJÓTUNA
11.1.2008 | 22:56
Lítið og eitt dvaldi eplið við gjótuna. Það vissi af þverhnípinu og að næsta vindhviða gæti mögulega þeytt því niður í kolsvart dýpið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Hann missti annan fótinn fyrir mörgum árum
10.1.2008 | 22:44
Hann heitir Villy og er járnsmiður. Gamall maður, hvíthærður með góðlegan svip. Hann missti annan fótinn fyrir mörgum árum vegna þess að hann datt niður úr tréi. Í mörg ár hélt hann fast í að halda fætinum sem gerði í raun ekkert annað en að valda honum kvölum. Þar kom að að hann var skorinn af. Hann gekk með gervifót. Bjó í gömlu húsi í litlum bæ í norðurhluta Danmörku með konunni sinni sem leit út eins og hálf álfkona, og íslenskum hundi sem gelti alltaf þegar ég bankaði upp á. Villy gerði statífin undir þetta fat eftir kúlupennateikningu sem ég lét hann fá. Hann á lítið verkstæði þar sem hann dundar við málmvinnu ýmiskonar, notalega innréttað í skúrnum hjá honum. Þegar ég flutti búferlum sagði hann mér að hann væri að hugsa um að leggja verkstæðið niður...
Bloggar | Breytt 15.1.2008 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Villtir glerávextir finnast í vatni nálægt Keili
10.1.2008 | 00:41
Rakst á þessa ávexti í vatni nálægt Keili.
Þeir virðast vaxa í vatni og glerjast með tímanum.
Mig grunar að þeir séu yfir 100 ára gamlir eða eldri.
Þeir fljóta um og speglast í hver öðrum.
Fela sig vandlega fyrir almenningi.
Ég er heppinn að hafa rekið augun í þá.
Ákvað að láta það eiga sig að taka þá með mér.
Helgispjöll.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Svo hurfu þeir til fjalla að lokum......í bili.
9.1.2008 | 02:38
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)