Hvað segist ?

vatnsenglagos

Hvað segist úr djúpinu ?

Opnar gat í vatnið.

Eins og ósýnilegur geisli skýst fram spekin úr djúpinu.

Vatnsengill hlustar við spegilkúlu; hann hlustar og nemur.

Þetta ár verður gott fyrir ferðalanga heyrist óma úr djúpum.

Kipptu töskunni á bakið og fljúgðu á vit sólarinnar ómar á ný.

Vatnsengill brosir og hyggur á för.

Kemur til baka á sama tíma að ári.

Nemur og skilur.


Logavakt

logavakt

Hendur, logi og járn.

Jörð, tré og steinn.

Sameina titring,

víbra.

Hefja upp stef.

Syngja um það hvernig allt verður til úr engu og hvernig það sanni að þannig sé neindin ekki til.

Hvísla sín á milli;

"Allt býr í neindinni".

Hendur strjúka, logi skríkir, járn glottir.

Jörð brosir, tré faðmar stein.


Ræna/hjáræna

 

 

Spurðu ekki ekki hvað sprettur frá steinum, líttu, ályktaðu.

Hún gefur í senn og tekur þessi jörð.

Eins og mannveran, dvelur í rótum en varpar sjálfi.

Skuggaleikur.

photoflo

Spurðu ekki ekki hvað vex úr steininum, líttu og dragðu eigin ályktanir.

Hún gefur og tekur; jörð.

Eins og manneskja, eitt svarthol, sogar massa & dreymir um sjálf.


UMVAF

umvaf

Umvafinn og glóandi; tekur og bíður forms.


gRIp

steinn.jord

STEINN GRÍPUR HENDUR;

Á HVÍLIR JÖRÐ.

Fimm fingur þreifa; og fimm til.

JÖRÐ OPNAR SKAUT SITT.

ÞIGGUR.


Teikn

untitled

GlerTeikn


#731

Spuni

S   P   U   N   I


ReDD

mr.búbbi_tjull

Blámi, hattur, kyssivarir.

Herra Blár reddar deginum...


#832

overwiew(mask&female)

Það býr birta í öllum hlutum, neistar og glóð...


#4

4

SPRUNGIN SKURN.

SKURNARSPRUNGA.


Rennrenn

Rennrenn

Skömmu síðar sleppti hún höftunum;

þeyttist út í formið og hefur ekkert breyst síðan.


#151

kul

Það liggur í ofnum; kólnar h   æ   g   t...


INNSKOT

http://www.dailymotion.com/video/x3432q_openartreportage_creation

Umfjöllun um hina dágóðu OPEN ART PARIS 2007 sýningu sem ég fékk tækifæri á að sýna á. Allt á frönsku og svona en dágott innskot hjá vinum okkar...

Lifið heil !


KROP

kropid

KROP VIÐ LOGA


A U G N A B L I K

brennur

Brennur og gleypir, eyðir og skapar og þyrstir í loft.

Fuðrar upp og endurnýjast frá sekúndu til sekúndu. Brot af broti. Fæðist og deyr í sömu andrá.

Glampi af lífi...kemur og fer.

Man ekki upprunann, ræður ekki áfangastaðnum, stjórnast af hungri og stafar A U G N A B L I K.


Saga af gömlum ofni

gamallofn

GAMALL OFN Í HORNI STÓÐ OG YLJAÐI ÖLLUM SEM GENGU FRAMHJÁ.

GÖMUL KONA SPURÐI: HVER ER RÓT GÓÐMENNSKU ÞINNAR ?

OFNINN SVARAÐI: ÉG ÞRÍFST Á GLÓÐINNI Í HJÖRTUM MANNANNA.


LLKKDDEÞ

vatnalífLifir í vatni

Lítur yfir flötinn

Kannar birtu

Kann að kafa

Dreymir önnur vötn & aðra staði

Dansar ........

en aðeins

þegar engin sér til


Sól Dró

stund

Á meðan sól dró auga í pung og allt litaðist rauðu og fjólubláu stikaði hann um og raðaði glerformum í mynstur og sjórinn var sléttur og það var sumar og ég hafði ekki hitt hann neitt að ráði í nokkur ár og ég gekk um og myndaði og allt virtist púslast rétt saman...

Bróðir.


...

strandrek

 S    T    R    A    N    D    R    E    K   


Uppljóstrun undir öfugum formerkjum...

Ég veit hvar þeir halda til...en það er leyndó !

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband