Í STOFU ÚT Í BÆ
í stofu út í bæ brennur jólatré brennur jólatré í stofu út í bæ sviðnaðar grenigreinar asbesteiturlyfjagufur umlykja feita miðaldra frænku og svæfa hana værum svefni
í stofu út í bæ bæítúufotsí brennur jólatré kjarvalmálverk umbreytast mahóní Picasso Erró error rorre
brennur bumba á gömlum manni gusast blóð niður granir granir niður blóðgranir varalitur flagnar af hita af vörum ungrar móður blá augu gulna springa gulna agnirps anlug
jólatré miðaldra bumba móðir augu springa jesús kristur í rúst á gullkrossi Jens rass á lambi verður eldtungum að bráð óráð grátandi barn barn grátandi óráð faðir aska öskur ískur snark í pilluætufrænku
grasgrænkubuxur við nýja þvottavél leikur holdfnykur um háa hæla við útidyr babúbúbabúababúb gobbedígobb jólakort handrituð í hundruðum brenna í stofu út í bæ stirðnuð bros á jólahamingjuóskandi andlitum jólagjafanýútgefnum sundfitum kjöt af nýslátruðum nautgripum brennur í einhverri helvítis stofu út í bæ
brennur helvíti í bæ brennur helvíti í bæ |
Flokkur: Bloggar | Facebook
«
Síðasta færsla
|
Næsta færsla
»
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.