Project Happy Globe

HAPPY-GLOBE

 

ÍSLAND UMGIRT MUNNBLÁSNUM HAMINGJUHNÖTTUM.

Munnblásnum og skreyttum glerhnöttum með jákvæðum texta, ljóðum og setningum, í mismunandi stærðum, plantað umhverfis Ísland. Textinn á hnöttunum verður á mismunandi tungumálum og grafinn í glerið sem tryggir aldalanga varðveislu.

 

Hnettirnir verða grafnir í jörð og komið fyrir í vörðum með 12 kílómetra millibili, jafnt nálægt vegum sem fjarri þeim.

"Lausahnettir" munu einnig grafnir í fjöll hér og þar um allt land.

 

Hringvegurinn sem slíkur er rúmir 1300 km en líklega munu glerhnettirnir sem mynda að lokum hring líggja á svæði sem er stærra, jafnvel um það bil 1400 km.

Á hnettina verða grafin jákvæðnisorð, ljóð og hvatningarorð hvað varðar aukna hamingju og betra líf okkar sem jörðina byggja. Á tímum þrenginga og sögulegra efnahagshrakfalla íslenskrar þjóðar má líta á þennan gjörning sem milt andsvar, við bölmóði og svartsýnishyggju. Jörðin er fóðruð með glerhnöttum sem ætlað er að dreifa jákvæðni um byggð sem óbyggð ból frónsins og varða Ísland friði og jákvæðni.

 

Glerið er í þessu samhengi tilvalið. Efnið sem slíkt getur varðveist í þúsundir ára svo til óbreytt og þar sem textinn á kúlunum verður grafinn í þær mun hann standa skýr og greinilegur um aldir.

Ætlað er að verkinu ljúki 2015.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

GAngi þér vel með hamingjulistina, það verður spennó að fylgjast með þróun gjörningsins.

www.zordis.com, 19.7.2009 kl. 08:03

2 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Takk Zordís; vonast til að ná til Þorlákshafnar í ár auk "lausahnatta" sem dreift verður í fjöll hér og þar :) Kveðja í hitann !

Lárus Gabríel Guðmundsson, 19.7.2009 kl. 11:29

3 Smámynd: www.zordis.com

Svo mætti nú alveg gróðursetja eina hamingjukjúlu í San Miguel de Salinas og fá sér svo einn San Miguel á meðan hamingju uppskeran lætur eftir sér bíða!

Þorlákshöfn er eiginlega nafli alheims svo það er ágætt að ná þangað í ár :-)

www.zordis.com, 19.7.2009 kl. 17:22

4 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Jú Þorlákshöfn er nefnilega nafli alheimsins og miðað við að HAMINGJU HNÖTTUNUM verður dreift með göngu ágætis markmið held ég.

Kannski Spánn taki bara við eftir 2015 :)

Lárus Gabríel Guðmundsson, 20.7.2009 kl. 01:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband