Spíralar

skvetta

og eins og ringulreiðin felur í sér reglu
felur reglan í sér ótæmandi magn af upplausn, firru
hvorutveggja með rætur í neindinni
við aðeins hringsólandi
spor í kringum veruna

og eins og draumurinn er hluti af skynjuninni
liggur skynjunin einnig í draumnum
landamærin uppspuni

þannig eru allir "hringir" í rauninni spíralar þegar vel er að gáð
sem tengjast og halda áfram út í hið óendanlega


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: www.zordis.com

Gleðilegt árið gamli .... hringur eftir hring!

Ég er enn að bíða eftir tilkynningu, er orðin svakalega spennt .....

www.zordis.com, 5.1.2009 kl. 18:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband